Ég er búinn að sanka að mér slatta af bókum í gegnum tíðina.
Er hrifnastur af BCS og svo Radical brewing, hún er allt það sem Extreme brewing ætti að vera (en er ekki). How to brew er síðan auðvitað nauðsynleg þegar maður er að byrja.
Keypti síðan CloneBrews um helgina, slatti af skemmtilegum uppskriftum þar ef maður hefur áhuga á að klóna commercial bjóra, þó full mikið af undarlegum asískum og afrískum lagerum í henni fyrir minn smekk, allavega svona fljótt á litið.
Hann er bjóráhugamaður og skrifar um uppgang míkróbjórhúsanna í Bandaríkjunum og víðar. Ekki uppskriftir, en talað um marga stíla, humla og korn. Nefndir margir bjórar sem maður ætti að prófa. Frábær bók til að gefa manni hugmyndir að næsta bruggi.
Keypti þessa um daginn, frábær bók þegar maður er að hanna nýjar uppskriftir fyrir keppnir og slíkt. Dáldið gömul, sem sést aðallega á humlavali og slíku, en annars frábær.
Keypti þessa um daginn, frábær bók þegar maður er að hanna nýjar uppskriftir fyrir keppnir og slíkt. Dáldið gömul, sem sést aðallega á humlavali og slíku, en annars frábær.
Sammála með þessa bók, er að fletta í gegnum hana núna. Það er farið aðeins í vísindin (efnafræðina) á bakvið bruggið sem ég fíla mjög mikið. Góð uppflettibók.
Var að leita mér að illa fengnu eintaki af For the Love of Hops og þetta poppaði upp í leitinni: http://destroy.net/brewing/IIPA.pd
Skemmtilegt að rúlla í gengum þetta
Last edited by Plammi on 23. Oct 2014 12:40, edited 1 time in total.
Í gerjun: Á flöskum/Kút: Very Hoppy Saison Næst á dagskrá: Zombie, Hádurtur I revisited Hans Klaufi á FB
bergrisi wrote:Keypti þessa bók í Kanada síðustu helgi og er þægileg uppflettibók. Stutt og hnitmiðuð lýsing á hverjum bjórstíl með skemmtilegum skýringamyndum.
Æ, ekki nógu gott. Hefði haft mjög gaman að því að smakka hjá þér bjór.
Stoppaði reyndar mjög stutt í Edmonton. Var ánægður með bjórúrvalið þó það hafi ekki verið eins gott og í Denver.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
Ertu nokkuð nálægt Montreal? Fer þangað árlega, m.a. til að heimsækja þessa http://dieuduciel.com" onclick="window.open(this.href);return false; Mæli með bruggbarnum og flöskunum líka ef þú færð þær.
Hehe, er nú ansi langt frá Edmonton, en er frekar nálægt Montreal á kanadíska vísu (i.e. get keyrt þangað á einum degi). Hef komið þangað nokkuð oft, og Dieu du Ciel er frábært brugghús. Get keypt growlera frá þeim þar sem ég bý og það er ansi fínt, drakk Rosée d'hibiscus frá þeim í seinustu viku.
Fékk þessa í Köben um daginn. Almennt spjall um bjórgerð, miðuð frekar að byrjandanum. Svo eru uppskriftir að nokkrum Mikkeller bjórum. Er á dönsku en ensk útgáfa kemur víst 2015.
Ég fékk þessa í jólagjöf frá systur minni þegar hún kom heim frá USA: http://www.amazon.com/The-Complete-Beer ... gy_b_img_y" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;
Búinn með fyrstu þrjá kaflana og er mjög hrifinn! Mér finnst þessi umsögn lýsandi fyrir umfang bókarinnar:
"Figuring out which beers you want to spend the most time with just got easier with Bernstein's romp through beer history, styles and thirst-provoking stories."--Charlie Papazian, author of The Complete Joy of Homebrewing
einaroskarsson wrote:Ég fékk þessa í jólagjöf frá systur minni þegar hún kom heim frá USA: http://www.amazon.com/The-Complete-Beer ... gy_b_img_y" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;
Búinn með fyrstu þrjá kaflana og er mjög hrifinn! Mér finnst þessi umsögn lýsandi fyrir umfang bókarinnar:
"Figuring out which beers you want to spend the most time with just got easier with Bernstein's romp through beer history, styles and thirst-provoking stories."--Charlie Papazian, author of The Complete Joy of Homebrewing
Joshua Bernstein er gríðarlega fróður um þróun craft bjóra í Bandaríkjunum og kemur því frá sér í skemmtilegum og auðlesnu, texta. Hann skrifar reglulega í nokkur blöð og tímarit sem hægt er að lesa á vefnum. Hann er líka mikill talsmaður heimabruggs og er með mjög skemmtilega heimabruggtúra í New York. Ég hef verið svo heppinn að fara í einn svona heimabruggtúr, sem lesa má um hér http://fagun.is/viewtopic.php?f=20&t=3108" onclick="window.open(this.href);return false;
Það er aldrei að vita nema það verði svona túr hér í Reykjavík á næstunni...