Ég fékk að vita það í Skútuvogi að Skaði var amk ekki kominn á lagerinn (með greini) hjá ÁTVR. Hann átti þó að koma í dag eða á morgun þannig að hann ætti að vera kominn á morgun skv starfsmanninum sem ég talaði við.
Það leynist kassi bakatil í Keflavík. Líka tveir kassar af Teresa.
Sótti mér kippur af þeim áðan.
Konan er að fara í réttir um helgina svo ég get vel tekið áskorunni frá Borg um að drekka Teresuna ferska hehe
Já, ég fékk þau tíðindi að hann fengist í Heiðrúnu, Skútuvogi og Kringlunni, og einnig væri mögulega eitthvað eftir á Dalveginum. Þarf þó að bíða til mánaðamóta, vona að einhver eintök verði eftir handa mér þá.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Var í skútuvoginum í gær og nóg til af theresu og skaða
Á flösku: Sindness (Guinness clone), Hvítvín & Rauðvín
Á kút: #Yolo v3.5 Imperial stout með eik og koníaki
Í gerjun: Ekkert.....
To do: Alltof mikið.....