Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Á þessum þræði geta meðlimir spjallborðsins sett fram allt sem tengist gerjun. Ennig spurt spurninga og fengið aðstoð frá öðrum meðlimum.
Post Reply
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by hrafnkell »

Er einhver með plön fyrir þennan dag? Ég var bara að sjá þetta núna, en datt í hug að það gæti verið skemmtilegt að fólk reyni að brugga á laugardaginn og bjóði vinum sínum að kíkja í heimsókn og fylgjast með...

http://www.homebrewersassociation.org/p ... mebrew-day" onclick="window.open(this.href);return false;
User avatar
Classic
Gáfnagerill
Posts: 318
Joined: 18. Feb 2010 21:14
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by Classic »

Ég hlýt að vera á undan minni samtíð, gerði þetta fyrir hálfum mánuði. A.m.k. einn gestanna er búinn að hringja í mig og biðja um uppskriftir og talaði um að heimsækja þig fyrir helgina.. Hvort hann stendur við það er svo önnur saga :)
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
gr33n
Kraftagerill
Posts: 51
Joined: 9. Sep 2012 21:59

Re: Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by gr33n »

Haha... við vinirnir vorum einmitt búnir plana þetta, en þó á mánudaginn þannig að við erum innan skekkjumarka ekki satt ;)
Mbk. Gísli

Fyrirhugað: Black IPA, 15%+ Stout og fleira
Í gerjun: IPA, Súr Saison
Í secondary: Enskur Barley Wine
Á dælu : Hulk vs. Simcoe pale ale
Á flöskum: Fabio - Habanero pale ale, Bloody Frenchmen with their chocolat mousse - Súkkulaðistout
#17
User avatar
bergrisi
Undragerill
Posts: 948
Joined: 27. Apr 2011 23:24
Location: Keflavík

Re: Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by bergrisi »

Þræl sniðugt. Þetta er vinnuhelgi hjá mér en mun gera bjór í næstu viku og stefni á að kíkja á þig á miðvikudag.

Ef maður bíður einhverjum heim til að fylgjast með þá verður maður að vera soldið faglegur. Ég er alltaf að gleyma einhverju og hlaupandi um allt hús að leita að hitamæli, sykurflotvoginni, viktinni og yfirliett fatta ég eftir á að ég hefði getað gert eitthvað betur.

Spurning um að græja tossalista og fara í hvítann slopp og bjóða heim.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by hrafnkell »

Classic wrote:Ég hlýt að vera á undan minni samtíð, gerði þetta fyrir hálfum mánuði. A.m.k. einn gestanna er búinn að hringja í mig og biðja um uppskriftir og talaði um að heimsækja þig fyrir helgina.. Hvort hann stendur við það er svo önnur saga :)
Hann kom og tók 2 uppskriftir í dag :) Leifur Heppni og einhver helles minnir mig :)
bergrisi wrote:Þræl sniðugt. Þetta er vinnuhelgi hjá mér en mun gera bjór í næstu viku og stefni á að kíkja á þig á miðvikudag.

Ef maður bíður einhverjum heim til að fylgjast með þá verður maður að vera soldið faglegur. Ég er alltaf að gleyma einhverju og hlaupandi um allt hús að leita að hitamæli, sykurflotvoginni, viktinni og yfirliett fatta ég eftir á að ég hefði getað gert eitthvað betur.

Spurning um að græja tossalista og fara í hvítann slopp og bjóða heim.
Er ekki algjör óþarfi að vera að taka sig eitthvað alvarlega? :) Bara láta vaða ef maður hefur tök á, alltaf gaman að koma félögum betur inn í hobbýin sín, þá hefur maður enn meira að tala um þegar maður hittir þá.
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by Idle »

Einmitt, Hrafnkell!

Ég stressaði mig a. m. k. aldrei yfir neinu þegar ég bauð mönnum að fylgjast með og taka þátt í mínu bruggi. Best þótti mér ef þeir báru upp spurningar sem ég gat ekki svarað mjög auðveldlega.

En ég er skipulagður í óreiðunni, svo týndir hitamælar og þess lags eru ekki vandamál hjá mér. Hinsvegar er ég í miklu uppáhaldi hjá Murphy, og hann bíður mín gjarnan við hvert einasta þrep. :)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
bergrisi
Undragerill
Posts: 948
Joined: 27. Apr 2011 23:24
Location: Keflavík

Re: Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by bergrisi »

Var nú bara að grínast. Hef engar áhyggjur af áhorfendum. Þeir munu hvort eð er ekki þekkja rétt frá röngu í bjórgerð. Svo er bara um að gera að ljúga á jöfnum hraða þá halda allir að maður sé fagmaður.

Held ég fari í það að skipuleggja bjórdag.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
User avatar
gunnarolis
Undragerill
Posts: 563
Joined: 23. Mar 2010 16:44

Re: Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by gunnarolis »

Ég brugga best undir pressu :D
Næst: Bock, Pilsner
Í Gerjun : Brett'd Dubbel, Orval, Flemish Red, Lambic Mk1
Á flösku : Dubbel, Amarillo Smash
Á kút : Rauchbier Märzen.
User avatar
Classic
Gáfnagerill
Posts: 318
Joined: 18. Feb 2010 21:14
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by Classic »

Ég brugga best undir áhrifum :sing:
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
User avatar
atlios
Villigerill
Posts: 45
Joined: 4. Feb 2011 01:43

Re: Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by atlios »

Er að leggja í kryddaðan jólabjór sem ég fann hérna á síðunni úr byo held ég. Bauð vin en hann lét ekki sjá sig... Hans missir því það er guðdómleg lykt hérna! Mmmmmm... Image
Í gerjun: Munich Helles BIAB (gerjað með ölgeri WB06)
Á flöskum: APA bee cave BIAB, Hvítur sloppur BIAB
Á óskalistanum: Jólabjór, Lager, Hafrastout, Irish red ale, IPA, Leffe clone, vienna og partu-gyle
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by hrafnkell »

Heads up, þessi dagur er að detta inn aftur, verður næsta laugardag.

Er einhver með plön fyrir daginn?
gugguson
Gáfnagerill
Posts: 215
Joined: 26. Mar 2011 14:55
Location: Reykjavik

Re: Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by gugguson »

Það er algjör tilviljun að Gerandi er að fá 4-5 kunningja í heimsókn á laugardaginn þar sem við ætlum að taka eina lögn og fræða þá um aðferðafræðina. Þessir gaukar hafa aldrei prófað þetta áður.

Eftir lögn verður stefnan tekin á Microbar.

Ég hafði ekki hugmynd af þessum degi, þetta var planað hjá okkur fyrir um 4-5 vikum síðan.
Gerandi Bruggfélag

Næst: Carlsberg Clone, Biere de Garde, Hlemmur
Í gerjun: Dubbel úr BCS, Hlemmur III (Irish red)
Á flösku: Fölvi (Þurrhumlaður Pale Ale)
User avatar
bergrisi
Undragerill
Posts: 948
Joined: 27. Apr 2011 23:24
Location: Keflavík

Re: Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by bergrisi »

Skemmtileg hugmynd. Verð að prófa þetta. Hef ekki en boðið neinum að verða vitni af galdrinum sem bjórgerð er.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
Baldvin Ósmann
Villigerill
Posts: 20
Joined: 9. Aug 2013 10:17

Re: Teach a Friend to Homebrew Day (Nov 3)

Post by Baldvin Ósmann »

Skemmtilegt! Ég er nú tiltölulega nýbyrjaður en ég reikna með að vera tveim félögum innan handar fljótlega við sína fyrstu lögn. Vinur minn eyddi kvöldstund við að aðstoða mig þegar ég lagði í minn fyrsta bjór og ég hlakka til að geta "pay it forward".

Næsta ár skipulegg ég þetta og verð á réttum tíma.
Á flöskum: Hafra Porter, Tri-Centennial IPA, Simcoe Pale Ale SMaSH
Í gerjun: BM's Centennial Blonde
Á döfinni: Cascade / Orange Pale Ale
Lítrateljarinn: 180
Post Reply