Page 1 of 1

Súrmjólk

Posted: 11. May 2009 09:36
by Oli
Það má benda á það að það er líka hægt að gera sína eigin súrmjólk ef fólk hefur áhuga á því. Aðferðin er sú sama og með jógúrtið sem lýst er í öðrum þræði hérna. Gott að nota undanrennu, hita hana,kæla niður, bæta svo stofn útí, hægt að nota hvaða tegund sem er, og geyma yfir nótt við stofuhita, næsta morgun ertu þá kominn með þína eigin léttsúrmjólk, þarf svo kannski aðeins að hræra þetta upp og kæla svo. Hægt að búa til AB léttsúrmjólk svona td. bara prófa sig áfram.

Re: Súrmjólk

Posted: 11. May 2009 10:05
by Hjalti
Gríðarlega sniðugt og getur verið mjög mikill sparnaður í þessu. Hrein grísk jógúrt kostar hjá MS helvítis helling þannig að ef maður fjöldaframleiðir þetta þá getur þetta orðið gríðarlegur munur.

Re: Súrmjólk

Posted: 11. May 2009 10:36
by Oli
Já kemur sér vel nú þegar við þurfum að spara meira. Hægt að nota aurinn sem sparast í að kaupa malt og humla :skal:

Re: Súrmjólk

Posted: 11. May 2009 10:43
by Eyvindur
Klárlega. Auk þess er þetta allt saman meinhollt.

Verst að ég er kominn með einhvers konar mjólkuróþol í seinni tíð, og verð að fara varlega í mjólkurvörur. Engu að síður get ég notað þetta í eldamennsku, bara ekki sem uppistöðu í máltíð...