Page 1 of 1

Hvaðan fáið þið gerla, o.s.frv.

Posted: 2. Oct 2010 16:17
by kobbi
Jæja,
ég ætla að reyna að búa mér til parmessan ost og fara að mestu eftir
uppskriftinni í þessari bók en bæta við lipase ensími við.

Mig vantar því thermophilic gerla, lipase og hleypi. Hleypi fæ ég í búrinu
en hitt verð ég víst að panta mér af netinu, er það ekki?

Hvaðan er gott að panta svona lagað?
Eru einhverjar reglur um innflutning á svona löguðu sem maður þarf að hafa í huga?

Kveðja,
Jakob S.

p.s. Ef þið hafið þið búið til parmessan, endilega komið með góð ráð?

Re: Hvaðan fáið þið gerla, o.s.frv.

Posted: 2. Oct 2010 18:56
by kristfin
ekki búið til parmesan, en harða osta aðra. ég nota bara lífræna jógúrt. undirbý mjólkina í svona 25 gráður, set dollu af lífraænni ab jógúrt í og leyfi að vera til morguns.
það virkar fyrir mig

Re: Hvaðan fáið þið gerla, o.s.frv.

Posted: 5. Dec 2010 00:18
by BeerMeph
Án þess að ég viti mikið um ostagerð þá mun ekki vera létt fyrir þig að redda lípasa og ef þu reddar þér viðurkennndum lípasa myndi ég fara NÁKVÆMLEGA eftir leiðbeiningunum hvernig hann er notaður því annars er líklegt að þú missir alla fitu úr ostinum.

Re: Hvaðan fáið þið gerla, o.s.frv.

Posted: 5. Dec 2010 16:15
by kobbi
BeerMeph wrote:Án þess að ég viti mikið um ostagerð þá mun ekki vera létt fyrir þig að redda lípasa og ef þu reddar þér viðurkennndum lípasa myndi ég fara NÁKVÆMLEGA eftir leiðbeiningunum hvernig hann er notaður því annars er líklegt að þú missir alla fitu úr ostinum.
Ég pantaði í gerla o.fl. frá http://www.cheesemaking.com/" onclick="window.open(this.href);return false; og http://www.leeners.com/" onclick="window.open(this.href);return false;, þ.m.t. lipasa.

Kveðja,
Kobbi