Uppskriftin er mjög einföld: 49% pilsner, 49% hveiti og 2% special W, OG ca 1,054. 90 mínútna suða og örlítið af lág alfa humlum í 60 mínútur til að gefa 10 IBU. Gernæring.
Skipti svo virtinum upp í tvær gerjunarfötur, setti net yfir þær og fór með út á pall. Það þarf að gera þetta á ákveðnum árstímum, þegar rétt svif er í loftinu. Besti tíminn er í lok sumars, ca miðjan ágúst fram í september. Eftir 2 sólarhringa var hann tekinn inn, sameinaður í eina gerjnarfötu og hófst þá gerjun innan skamms. Látinn gerjast í nokkrar vikur, svo á secondary í nokkrar enn. Til að bragðbæta hann sett ég í hann góðan slatta af sólberjum í secondary.
Það má segja að þessi bjór sé ekki allra. Málið er að með spontant gerjun þá veistu aldrei hvað þú færð. Þegar þetta er ritað eru liðnir um 16 mánuðir síðan hann var gerður og rúmt ár hefur hann verið á flöskum. Bragðið af sólberjunum er enn mjög yfirþyrmandi en hefur dofnað mikið. Þar undir er flókið bragð sem erfitt er að festa hendur á. Þau ykkar sem hafið fengið þessa flösku í dagatalinu gefið honum séns. Ég er ekki að segja að ykkur muni líka hann, bara vert að hafa í huga að þetta er tilraunabjór og þá er allt leyfilegt, ekki satt?
